miðvikudagur, júlí 07, 2010

Saga af 7. flokki

Um daginn fór ég með 7. flokk á stórmót uppi á skaga.

Æsingurinn verður oft mikill, ekki síður hjá þjálfurum og foreldrum en leikmönnum sjálfum.

Við og við koma þó upp atvik sem setja þetta allt í rétt samhengi.

Í einum leik F liða, þar sem allt var hreinlega að verða vitlaust af spenningi, kallar markvörðurinn þungt hugsi á mig:

"Eysteinn!....Ey-STEIIIIIIINNNNN!!!"

Ég lít upp og geng strax meðfram hliðarlínunni í áttina að honum, veiti honum alla mína athygli og er tilbúinn með mína skoðun á öllum hugsanlegum hlutum knattspyrnunnar, og að gefa ýmis ráð til að auka líkur á glæstum grindvískum sigri, þegar spurning hans hljómar yfir salinn:

"Verður hoppikastalinn í dag eða á morgun?"

1 Comments:

Blogger Heba said...

hehehehe :D

3:12 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home