fimmtudagur, maí 06, 2010

Merkilegur karl

Haldinn var sérstakur "heiðursleikur" (testimonial) fyrir Tony Carr um daginn en hann hefur starfað sem unglingaþjálfari hjá West Ham United síðan árið 1973 og hefur verið yfirmaður unglingastarfsins síðan árið 1980, eða í 30 ár.

Svona langur starfsaldur er svo sem merkilegur út af fyrir sig, en það sem gerir hann enn merkilegri, er allur sá fjöldi gæðaleikmanna sem hefur farið í gegnum skólun hans hjá West Ham. Svona leikir eru nánast eingöngu haldnir fyrir leikmenn og framkvæmdastjóra, en í þetta skiptið þótti ástæða til að breyta út af vananum.

Bæta verður því við að flóðljósin frá heimavelli West Ham sáust frá æskuheimili hans og að hann kom til West Ham sem 15 ára strákur með drauma um atvinnumennsku. Hann var meðal annars þar sem lærlingur og á sínum fyrsta degi þar, árið 1966, safnaði þáverandi framkvæmdastjóri, Ron Greenwood öllum leikmönnum saman og óskaði Bobby Moore (fyrirliði heimsmeistaraliðs Englands), Geoff Hurst (þrenna í úrslitaleiknum á HM) og Martin Peters (ekki síður í metum hjá þjóðinni eftir þennar mesta sigur enskrar knattspyrnu) sérstaklega til hamingju með Heimsmeistaratitilinn.

Carr burstaði skó þessara leikmanna, eins og ungra leikmanna var siður í "þá gömlu góðu" daga.

Með því að smella hér má sjá myndasyrpu frá þessum heiðursleik en hvorki fleiri né færri en 14 þúsund manns borguðu sig inn á leikinn til að styðja karlinn. Á myndunum má sjá nokkra vel þekkta leikmenn, sem allir eiga uppruna sinn hjá West Ham. Einnig má smella á "news" efst á síðunni og finna þar fleiri fréttir tengdar þessum leik, þar sem hver snillingurinn á fætur öðrum vottar honum virðingu sína.

Helsta ástæða þess að ég er hér að skrifa um þetta er að ég hef aðeins kynnst þessum manni, eftir að ég heimsótti West Ham, haustið 2008, og dvaldi þar í vikutíma. Sú dvöl var frábær og var magnað að kynnast Mr. Carr og hugsanagangi hans og annara þjálfara.

"What you try to do with all the young players is to try to give them good habits, on and off the pitch. That means working hard, practising, trying to be the best player you can be, and when you´re off the pitch, conductiong yourself in the right way and steering clear of trouble."

-Tony Carr

Til hamingju, Tony Carr!

Frábær frétt af vef BBC, þar sem hann tjáir sig meðal annars um stærstu stjörnurnar sem verið hafa undir hans leiðsögn:

West Ham honour youth boss who nurtured 80M Pounds of talent

MJÖG merkileg staðreynd: Síðan félagið var stofnað árið 1900, hefur félagið aðeins haft 12 framkvæmdastjóra. Tony hefur starfað fyrir níu þeirra!

Önnur mjög góð grein frá The Sun

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Just want to say what a great blog you got here!
I've been around for quite a lot of time, but finally decided to show my appreciation of your work!

Thumbs up, and keep it going!

Cheers
Christian, iwspo.net

4:51 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home