R.E.M. þrítugir

Í dag, þann 5. apríl, 2010 eru nákvæmlega 30 ár síðan hljómsveit, sem seinna hóf að kalla sig R.E.M. lék í fyrsta sinn saman á sviði.
Þetta gerðu þeir í gamalli og niðurníddri kirkju í Athens, í Georgíufylki, í tilefni af afmæli vinkonu þeirra, Kathleen O´Brien.
Sögunni má fylgja að meðlimir sveitarinnar bjuggu í þessari kirkju, ásamt nokkrum fjölda fólks.
Þetta átti upphaflega bara að vera heimilislegt partí, en þegar upp var staðið voru um 500 manns búnir að troða sér inn í kirkjuna, en þess má geta að til að komast inn í salinn þurftu gestir að fara í gegnum gat, sem finna mátti í skáp annars herbergis.
Myndirnar sem fylgja eru víst þær einu sem til eru úr þessu partíi.
Til hamingju með daginn, R.e.m. (og allir þeir fjölmörgu sem lesa;))

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home