sunnudagur, mars 14, 2010

Gullkorn frá meisturunum í 7. flokki

"Eysteinn!

Það er 3-0 fyrir okkur! Ég er búinn að skora tvö og búa til tvö!"

Fyrir 7. flokks æfingar á laugardögum er aukaæfing hjá 2. flokki. Þar sem hún er kl. 09:00 er mætingin á hana ansi misjöfn og í þetta skiptið var aðeins einn leikmaður á staðnum, og í lok sinnar æfingar, var hann að æfa aukaspyrnur.

Tveir 7. flokks strákar voru mættir og voru búnir að virða þetta fyrir sér í góða stund, áður en annar þeirra kom með þessa líka hvatninguna á þann sem var að æfa sig:

"Eysteinn?................

Á hann að REYNA að skjóta útaf?"