mánudagur, maí 23, 2011

Tja-TJIIIIIIIIIING!!!!!!!

Upphitun fyrir nágrannaslaginn í Mílanóborg var að ljúka og leikmenn farnir að rölta einn af öðrum inn í búningsklefa, þegar þjálfari AC Milan bendir á boltanet og kallar á aðstoðarþjálfara sinn:

"Hey! Settu alla boltana í netið, áður en við förum inn. Við vorum með tólf bolta"

Þá svarar aðstoðarþjálfarinn:

"Já,.....en við eigum ekkert í þessu neti"

Þjálfarinn: "Nú? Hvaða net er þetta þá?"

Aðstoðarþjálfarinn: "Þetta er INTER-netið"

mánudagur, mars 07, 2011

Besta stemmning í heimi?

Sá sem tók þetta myndband upp hefur setið svona 20 sætum til vinstri við mig.

Ekki hætta að horfa þegar markið er komið, því fljótlega upp úr því hefst nokkuð kraftmikil Celtic útgáfa af lagi Depeche Mode, I Just can´t get enough.

Ef þú ert með lista yfir þá hluti sem þig langar til að gera á meðan þú heldur þessu lífi, bættu þá inn á hann:

"Fara á Celtic - Rangers"

Hér má sjá valda kafla úr sjónvarpsútsendingunni.

þriðjudagur, febrúar 08, 2011

Tveir fimmaurar í kassann

Ég hef MJÖÖÖÖÖG lengi lifað eftir mottóinu:
"3765 fimmaurabrandarar á dag, koma skapinu í lag"
og í kjölfarið og hinu nátengt fylgir mottóið:

"Því verri, því betri".

Hvað sagði hafnfirðingurinn þegar hann gaf félögunum á barnum til kynna að hann þyrfti að fara að læra undir próf?

"Jæja, strákar! Það þýðir ekki að sitja heima og lesa!"

Það var mikill snjór á Fellavelli þegar við fórum á æfingu í kvöld og við vorum með skóflur til að búa til smá pláss fyrir æfinguna. Allt í einu fær hinn eini sanni Stefán Eyjólfsson eftirfarandi hugmynd:

"Hey! Strákar! Eigum við ekki bara að draga litlu mörkin eftir vellinum?"

Ég gat ekki látið mér þetta dauða-færi úr greipum sleppa:

"Jú! Það er rétt, Stebbi. Þetta gengur ekki. Einhvers staðar verður að draga mörkin!"

miðvikudagur, janúar 26, 2011

Uberlin

Hér er fjórða lagið af Collapse Into Now.

Til að hlusta, skaltu smella hér.

Er mars - mánuður ekkert að nálgast, eða....?

fimmtudagur, janúar 06, 2011

Þriðja lagið komið - Beint í mark

Þriðja lagið af væntanlegri plötu R.e.m., Collapse Into Now er nú komið fram í dagsljósið en það heitir Oh My Heart.

Það er strax farið að líkja þessu við Everybody Hurts, svona meiningarlega, í það minnsta.

Skoðið hér.

miðvikudagur, desember 22, 2010

Gleðileg jól!



Þetta lítur bara nokkuð vel út hjá mínum mönnum.


It Happened today er sem sagt annað lagið sem sent er út á netið af Collapse Into Now.


Verst að þurfa að bíða eftir þessu fram í mars.

fimmtudagur, desember 16, 2010

Preview lag af næstu plötu R.E.M.


Næsta plata R.e.m., Collapse Into Now kemur út í mars, næstkomandi og þeir hafa nú hent einu lagi út á netið og ber það nafnið "Discoverer".


Þess má geta að Eddie Vedder og Patti Smith eru bæði gestasöngvarar á plötunni, sem var tekin upp í Berlín, New Orleans og Nashville. Þá leikur Lenny Kaye, sem alltaf hefur fylgt Patti Smith, á gítar í einu lagi sem inniheldur síðasta gestasöngvarann, Peaches, sem ku víst vera frekar umdeild listakona.
Hér má til dæmis finna plötutitil sem er víst dæmigerður fyrir hana og afskaplega aðlaðandi mynd af henni.


Mér líst vel á lagið og sem fyrr eru þeir að brillera í velheppnuðum "kaflaskiptingum" (nú væri gott ef einhver sem hefur vit á tónlist myndi kommenta og segja mér hvað á að kalla þetta) í sinni lagasmíð.


Svalt lag, sem finna má hér og hér fyrir neðan má finna uppröðun laganna og titlaheiti á Collapse Into Now:


01. Discoverer 02. All The Best 03. Uberlin 04. Oh My Heart 05. It Happened Today 06. Every Day Is Yours To Win 07. Mine Smell Like Honey 08. Walk It Back 09. Alligator Aviator Autopilot Antimatter 10. That Someone Is You 11. Me, Marlon Brando, Marlon Brando and I 12. Blue
P.s. Nörda-bónus:
Patti Smith stakk upp á nafni plötunnar.
Guitarist Peter Buck said: "Naming the thing is always the hardest. Patti was looking at the lyric sheet and she said, 'how about 'Collapse Into Now'?' So Patti named it and you gotta go with what Patti says."